Markhópur: Stjórnendur
Stjórnendur með Seesaw áskriftarreikninga geta sett upp bekkina, kennara- og nemendareikninga skólans í einu lagi! Þú getur búið til bekki með því að nota CSV hópskráarinnflutning, eða með því að nota Clever eða ClassLink. Við mælum með að flestir skólar og skólahverfi noti CSV, sérstaklega ef þarf að skrá hópa hratt.
Clever eða ClassLink eru eingöngu í boði fyrir Seesaw District notendur.
Athugið, ef þið eruð að skrá hópa um miðjan vetur mælum við ekki með að nota Clever eða ClassLink.
Ef þú ert að búa til bekki með CSV hópskráarinnflutningi, notar þú okkar Google Sheets sniðmát eða okkar Microsoft Excel sniðmát til að búa til töflureikni með gögnum, flytja hann inn í skólann þinn og búa til bekki í einu lagi. Þetta er mun auðveldara og hraðvirkara en að búa til reikninga einn í einu. Sjáðu leiðbeiningar skref fyrir skref um hvernig á að flytja inn bekkjaskrár með CSV. Við mælum eindregið með að búa til NÝJA bekki á hverju ári og setja eldri bekki í geymslu í stað þess að endurnýta bekki frá fyrra ári.
Ef þú ert þegar að nota Clever í skólanum þínum geturðu notað Clever til að samstilla við Seesaw og búa til bekki, kennara- og nemendareikninga í einu lagi. Sjáðu leiðbeiningar skref fyrir skref um hvernig á að skrá hópa með Clever.
Ef þú ert þegar að nota ClassLink í skólanum þínum geturðu notað ClassLink til að samstilla við Seesaw og búa til bekki, kennara- og nemendareikninga í einu lagi. Sjáðu leiðbeiningar skref fyrir skref um hvernig á að skrá hópa með ClassLink